17.1.2012 | 12:53
Mikilvægt er að sniðganga svínaafurðir
Pylsur og beikon eru svínaafurðir og eitt aðaldæmið um svona unnar kjötvörur. Eins og fram kom í máli dýralæknis í Silfri Egils um daginn er það svo að hérlendis sem víðar er það þannig að karlkynssvín geld án deyfingar og dýralæknis og verpandi hænur eru hafðar margar saman í búri og hver hæna með um það bil eitt A4 blað sem sitt rými og hafa ekkert annað að krafsa í árin 2 sem þær lifa og sjá aldrei sólarljósið. Einhver sagði frá því að þjáningar jarðarbúa í helförinni og Seinni Heimstyrjöldinni séu bara brot miðað við samanlagða þjáningu nú á dögum sem er vegna þess að ómannúðleg meðferð á dýrum hefur aldrei verið meiri og geimverurnar sem rændu konunni og gerðu alls konar tilraunir á henni í geimfarinu og þá spurði hún þær með hugskeytum af hverju eruð þið að þessu og þær svöruðu á móti: Hvað heldur þú að þetta sé miðað við það sem þið jarðarbúar gerið við dýrin? Ég mæli þess vegna með því að fólk hætti afarið að kaupa pylsur, beikon og aðrar svínaafurðir og allt kjúklingakjöt líka (það fást t.d. mjög góðar, próteinríkar og ódýrar soja_/jurta nuggets í bónus sem maður steikir og framreiðir alveg eins og kjúklinganuggets og eins bendi ég fólki á að sniðganga önnur egg en lífræn hamingjuegg sem fást t.d. á góðu verði í Bónus (brúnu eggin).
|
Pylsuát eykur líkur á krabbameini |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
1.10.2011 | 10:06
Hvar er fjárlagafrumvarpið?
Ég man ekki betur en fjölmiðlar hafi alltaf áður fyrr sagt frá fjárlagafrumvarpinu jafnvel dögum fyrir formlega dreifingu þess meðal þingmanna á þessum degi og Fréttablaðið sem aðrir fjölmiðlar hafi greint frá því í aðalatriðum sama dag og þing er sett eða 1. október.
Núna er það ekki svo?
Við vitum hins vegar að 3 - 5 % niðurskurður núna, nægir til að rústa hér öllu, bæði velferðarkerfinu, og fólki.
Svona í lokin, til að vera málefnalegur, getur verðtryggingin farið án þess að myntin, íslenska krónan, sem á sér ekkert haldreipi og enginn tekur mark á, fari líka?
|
Fólk streymir á Austurvöll |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
8.8.2011 | 11:03
Neikvæðni eða tortryggni í garð femínisma er eðlileg
Sóley Tómasdóttir í VG var mjög mikið strikuð út í kosningum og það er ástæða fyrir slíku. Margir gera sér grein fyrir því sem Sveinn Andri lögmaður kallar fasíska femínsista sem vilja helst hengja menn án dóms og laga. Móðir Sóleyjar talaði mjög skýrt í þá áttina í síðustu viku þegar hún hvatti til fleiri og harðari dóma fyrir kynferðisafbrot. Ég vil sjálfur taka fram að ég votta fórnarlömbum kynferðisafbrota dýpstu samúð mína en það verður að hafa í huga að sönnunarbyrðin er oft erfið í slíkum málum og það hefur líka oft gerst hérlendis að menn hafa lent í varðhaldi vegna loginna saka og sjálfur veit ég um sjö menn á tímabilinu 2004 til 2008 sem lentu í varðhaldi hérlendis vegna slíks og þá er ég ekki að tala um þau mál þar sem meintur gerandi afneitar öllu heldur þar sem áþreifanlegar vísbendingar og jafnvel sannanir komu um slíkt eftir á. Í Færeyjum sátu hjón saklaus í fangelsi í heilt ár vegna rangra og loginna saka um sifjaspell og það fréttist bara af því máli þar sem það mál teygði sig óvænt til Íslands. Þar fyrir utan má nefna ýmislegt annað skeytingarleysi í garð einstaklingsins sem femínistar kæra sig kollótta um og berjast jafnvel fyrir eins og það að í Svíþjóð er um að ræða raunverulega jákvæða mismunun þar sem gerðar eru lágmarkskröfur og ráðið út frá kynferði. Það má nefna ótalmörg önnur dæmi af slíkum toga. Uppnefnið sem Palli nefndi varðandi femínsima á því rétt á sér og kemur ekkert við þeirri staðreynd að sumir eru á móti samkynhneigðum.
|
Mikil umræða um orð Páls Óskars |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.7.2011 | 12:35
Það vita allir að það er miklu hagstæðara að búa í Noregi, Danmörku og annars staðar á Norðurlöndum
|
Flúði til Noregs undan skattinum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.7.2011 | 22:08
Björn sér punktinn, miðar rétt en skýtur yfir markið
Björn gerir spillingunni, græðginni og siðleysinu í tengslum við Baug góð skil í nýrri bók sinni en skýtur yfir markið í þessari umfjöllun sem vitnað er í fréttinni.
Hvað sem öllu líður vörðu baugsmiðlar ekki einir íslenska fjármálasukkið fram að gjalddaga, heldur meira og minna allir hvort sem þeir voru í fjölmiðlun, fjármálageiranum eða stjórnmálum. Það dugar því afar skammt að benda á Skaftahlíðina í því sambandi.
Það er svolítið eins og að bera saman epli og appelsínur að bera Fréttablaðið saman við News of the World, nema aðrir baugsmiðlar eins og DV baugsmanna, visir.is og Stöð 2 séu tekin með í þann samanburð og samt væri þá um samanburð á eplum og appelsínum að ræða.
|
Bandalag gegn Sjálfstæðisflokknum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Er Sóley tilbúin að lofa borgarbúum hraðlest milli Mjóddar, Hafnarfjarðar og Leifsstöðvar? Ef flytja á innanlandsflugið þangað verða að koma slíkar geigvænlegar samgöngubætur á móti svo fólk hætti ekki bara að taka innanlandsflugið og það leggist ekki bara af. Það sem gleymist hins vegar í umræðunni er fjölmargt eins og að flugvöllur á Hólmsheiði kostar líka sitt en yrði bara drasl miðað við núverandi flugvöll vegna þess hversu vindasamara er þar og bæði virðist ekki skipta máli að innanlandsflug fellur rosalega oft niður vegna hvassviðris auk þess sem það getur enn myndast óveður eða staðbundið óveður sem enginn veðurfræðingur sér fyrir og því er ekki hægt að sætta sig við verri varaflugvöll fyrir Keflavík. Eins er ekki hægt að reiða sig alfarið á þyrlur fyrir sjúkraflug. Ég þekki t.d. ekki til líffæraflutninga en þyrlur duga tæpast fyrir þá nema á mjög stuttum leiðum og hvað höfuðborgarsvæðið okkar varðar þarf í slíkum tilvikum líklegast að nota þotuþjónustu ef fundinn er líffæragjafi erlendis fyrir sjúkling hérna. Á síðustu árum og misserum hefur olíuverð hækkað til muna og fer enn hækkandi og það er því bara rugl að halda að verði innanlandsflugið fært til Keflavíkur muni farþegarnir fylgja því þangað eins og ekkert hafi í skorist. Um leið og fólk stendur frammi fyrir því að þurfa að taka flugrútuna í innanlandsflugið og aftur til baka mun það bara hætta að velta því fyrir sér hvort það eigi að taka flugið. Slíkt yrði ekkert smá alvarlegt því innanlandsflugið hérlendis hefur verið nógu erfitt hingað til og verður enn erfiðara á næstu árum vegna hærra eldsneytisverðs. Varla vill Vg að ríkið borgi með eða taki yfir innanlandsflugið og þá verður jafnvel enn snúnara að ákveða hvert eigi að fljúga og hve oft. Hvað röksemdirnar um að nýta Vatnsmýrina sem byggingarland til að þétta byggð og skapa tekjur er það líka önnur eins hringavitleysan þar sem líkön arkitekta gera ekki ráð fyrir öðru en lágreistri byggð enda viðurkenna allir m.a. borgarfulltrúarnir að gatnakerfið ræður ekki við meira og innst inni vita allir að lóðatekjur munu ekki duga fyrir bæði nýjum umferðarmannvirkjum til að mæta aukinni umferð og hraðlest til Keflavíkur, einfaldlega af því það er hvorki til eftirspurn né peningar hjá auðmagninu auk þess sem það fengist ekki neitt rosalega mikið land þótt flugvöllurinn fari. Ég bendi líka á hættuna af flóðum og hver á að borga fyrir það ef metrahár eða meiri sjór flæðir yfir allt þarna? Vg vill kannski bara þvinga fólk til að taka almannasamgöngur eins og fátækt fólk, skjólstæðinga sína til að borga hærra verð þegar það neyðist til að kaupa sér húsnæði eins og er raunin á Íslandi. Flugöryggi er líka nokkuð sem skiptir verulegu máli en eins og áður segir getur veður breyst skyndilega og frá Reykjarnesi er langt til bæði Akureyrar og Egilsstaða og eru flugvellirnir þar svo sem ekki nein hátíð heldur með einni flugbraut og erfiðum aðflugsaðstæðum úr suðri. Reykjavík er líklega skjólsælasti staður sunnan Snæfellsness og austan Austfjarða vegna skjólsins sem fjöllin sem mynda hornið í kringum borgina veita en það er samt miklu vindasamara á Hólmsheiðinni og slíkur flugvöllur yrði tæpast neinn varaflugvöllur fyrir Keflavík auk þess sem alltaf er hætt við slysum í æfinga- og relluflugi þar sem litlar vélar hafa ekki þann skriðþunga sem stærri vélar hafa og flugmennirnir eru kannski óreyndir eða að byrja að læra flug. Af þessum sökum hafa oft orðið banaslys í aðflugi og lendingu að Reykjavíkurflugvelli og dæmigert slys af þeim toga var þegar þjóðkunnur maður hlekktist á í lendingu sem hefur líklega verið vegna hviðu eða álíka. Mér finnst algjör óþarfi að fjölga flugslysum hérlendis um helming með því að flytja flugvöllinn upp á Hólmsheiði.
Ögmundur er innanríkisráðherra þ.e. líka samgönguráðherra auk þess að vera mikill prinsípmaður og ekki neinn framapotari eða lýðskrumari. Hann bregst því ekki landsbyggðinni og þeim íbúum höfuðborgarsvæðisins sem þurfa að reiða sig á innanlandsflugið gengur hvorki ef veður er of slæmt eða farþegana vantar. Það er hins vegar alveg þekkt með Vg að gera ekki greinarmun á teóríu og praktík og hugsa hlutina ekki til enda auk þess sem skoðanakúgun og klíkuveldi virðist fara að einkenna þann flokk eins og Framsókn og Sjálfstæðisflokk sem hafa á móti verið lausir við alls konar hugmyndadellu vinstri flokkanna sem greinir ekki á milli hugsjónanna sjálfra og framkvæmdar þeirra og stundum hafa jafnvel annarleg sjónarmið legið á bak við. T.d. sagði einn nokkur framarlega í Vg við mig fyrir fjórum árum að álfyrirtækin gætu bara farið til Amazon frumskógarins í stað þess að virkja á hálendi Íslands. Sá sem segði þetta í hljóðnemann á ráðstefnu alþjóðlegra umhverfissamtaka kæmist ekki óbæklaður út úr húsi í kjölfarið og yrði rekinn úr þeim að auki, enda regnskógar heimsins þeir staðir sem brýnast er að vernda vegna gildi þeirra fyrir vistkerfi jarðar og þar með okkar mannanna auk annarra sjónarmiða eins og varðandi lyfjagerð og lækningar, sérstæðar menningu og sögu, mannfræði o.s.frv. Svona afstaða myndi því kallast nimbismi (not in my backyard) af verstu gerð.
|
VG vill flugvöllinn burt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2011 | 17:55
VG-liðar feta og freta í þessu landsdómsmáli í dýpstu fótspor Stalíns, Ho Chi Minh og annarra pólitískra skyldmenna sinna
Ég hef verið á móti þessu landsdómsþrugli frá upphafi og þá m.a. af því að ég sá fyrir mér að svona mál væri lögfræðilega ótækt og yrði því ekki vísað frá yrði skömm af fyrir réttarkerfið með alls konar afleiðingum fyrir Geir, réttarfarið sjálft, stjórnmálin og þjóðina auk þess sem bæði er ótækt að Geir greiði mörg hundruð milljónir sem þetta kostar fái hann á sig fasískan dóm auk þess sem þjóðin hefur heldur betur annað að gera við peningana á þessum niðurskurðartímum en í þetta rugl þurfum við almenningur í blóðugum niðurskurði inn að beini að taka þetta á okkur. Réttast er að allir þingmenn sem kusu að ákæra sem voru helst Vg-liðar þurfi að axla alla pólitíska ábyrgð af þessu máli hvernig sem það fer og það er í rauninni sama hvernig þetta mál velkist núna í framhaldinu að það mun hitta þingmenn Vg og skaða þann flokk umfram aðra þeirra og líka nokkra samfylkingarmenn og það segi ég þótt ég sé sjálfur samfylkingarmaður. Ég sagði mig reyndar úr flokknum fyrir nokkrum vikum.
Ekkert smá írónískt að "stéttleysishugmyndafræði" Vg valdi því að ekki bara ég og þú höfum ekki efni á lögfræðingum og vörnum í réttarríki heldur þarf sjálfur fyrrverandi forsætisráðherra með allar sínar milljónir að betla fé af almenningi til að geta haldið upp vörnum, ekki gegn milljarðamæringum eins og Hannes Hólmsteinn sem missti allt sitt vegna auðmanns sem sótti að honum í öðru og kapítalískara ríki, heldur er það sjálft ríkið eða nánar tiltekið norræna íslenska ríkið sem sér til þess að enginn og ekki einu sinni velefnaður fyrrum forsætisráðherra hafi efni á málsvörn. Málið er að hér er heldur ekki um að ræða mildari afstöðu marxismans sem síðar varð að reformismanum og skandinavískri jafnaðarmennsku með áherslum sínum á réttlátara samfélagi en öll önnur hugmyndafræði gat státað sig af í orði og verki og þá ekki bara í tillti til fjöldans heldur líka einstaklingsins. Í þessu máli skín í gegn skyldleiki hugmyndafræði VG við byltingarmarxisma, Lenín, Trotski, Stalín, Mao, Ho Chi Minh, Kim Jong Il, Castro, Ulbricht og allt það heila klabb. Sjálfur veit ég að það að það eru sömu stoðir að baki hugmyndinni um að ákæra Geir, Ingibjörgu, Árna og Björgólf og í annarri hugmyndafræði VG, því öll hugmyndafræði ófrjálslyndra jafnaðarmanna ef ekki sósíalisma öfugt við frjálslynda jafnaðarmennsku, gengur út á áhersluna fjöldann án tillits til einstaklingsins og pólitísk markmið á kostnað mannréttinda og útópískt samfélag þar sem heildarvelferð er hámörkuð án þess að einstaklingur og mannréttindi séu sett í forgrunn og annað leitt út frá því. Ég skal hins vegar ekki dæma um útkomu í öllum öðrum stefnumálum VG sem byggja nákvæmlega á þessum sama grunni að öðru leyti en því að í þessu Landsdómsmáli gegn Geir snúast vopnin heldur betur í höndunum á VG liðum og hugmyndafræði VG því þetta Landdómsmál hefur sýnt öllum öðrum málum betur að velferð heildarinnar verður ekki hámörkuð án þess að byrjað sé á að setja einstaklinginn, réttlæti og mannréttindi í fyrsta sæti. Heildin, þ.e. ég, þú og þjóðin föllum líka í annað sæti með Geir og í fyrsta sæti lendir því einungis sú hræsni sem einkenndi menn á borð við Stalin, Mao, Ho Chi Min og alla þá svipuðu kompóna sína sem drógu alla með sér í meira svað en verður með nokkru móti sagt um þá bláu harðstjóra, þjóðfélagslíkön og hugmyndafræði sem þeir börðust gegn. Þingmenn VG geta sjálfir greitt þessar hundruð milljóna sem þessi vitleysa hefur kostað og á eftir að kosta mig og þig og okkur öll á meðan þessi blóðugi niðurskurður á sér stað og við þurfum að leggja okkur öll fram eins og við getum til að verja bæði kjör okkar og möguleika og á næstu kreppufjárlögum þarf ekki síst vegna hugsjónar VG um enga erlenda fjárfestingu = enginn hagvöxtur = meiri niðurskurður og skattahækkanir þar sem sífellt þrengist sá hópur sem getur lifað af launum sínum, fær að komast inn í menntastofnanir, hefur aðgengi að dýrum krabbameinslyfjum, MS-lyfjum o.s.frv. en á meðan megi eyða hundruðum milljóna af skattfé almennings í fyrirfram séð réttarfarshneyksli sem aldrei hafa þekst á Norðurlöndum og þarf að sækja til samanburðar sambærileg dæmi úr löndum kommúnisma og fasisma. Þetta með lyfin er t.d. ekkert kjaftæði í mér því það hef ég eftir hagfræðikennara mínum úr menntaskóla að hægt er að eyða allri þjóðarframleiðslunni í krabbameinslyf og meira til og það fá fæstir sem þeir þurfa og það er t.d. meira gert fyrir sextugan einstakling en áttræðan og Ms sjúklingar hafa haft orð á því að þeim sé líka raðað í forgang eftir sínum lyfjum. Í skólakerfinu eru hópar sem eiga undir högg að sækja og má t.d. nefna að það kostar að halda úti forvarnarstarfi gegn einelti. Sjálfur veit ég ekki hvort fólk á miðjum aldri fái núna að stunda háskólanám hafi það ekki lokið stúdentsprófi og hvorki laun né bætur hafa verið uppfærð í tengslum við verðlag sem hefur verið raunin fram á allra síðustu ár þótt framkvæmdin hafi verið önnur en á árunum fyrir og eftir 1980 og því hefur kaupmáttur hrapað og hann mun halda áfram að gera það á næsta ári enda engin erlend fjárfesting í gangi og það þýðir samsvarandi minni hagvöxtur miðað við eldri áætlanir sem þýðir aftur á móti enn meiri lífskjaraskerðingu í formi hærri skatta eða því sem alvarlegra er þótt hitt sé nógu slæmt, þ.e. meiri niðurskurðar sem hittir samt síst fyrir íbúa Garðabæjar og Seltjarnarness heldur skjólstæðinga hugmyndafræði Vg í Fellahverfinu, námsmenn, barnafólk og aðra sem rétt skrimta á tekjum sínum. Hverjum halda Vg-liðar annars að þeir séu að þjóna með því að senda þjóðinni mörg hundruð milljóna reikning fyrir réttarfarshneyksli sem mun í besta falli bara kljúfa þjóðina og skapa aukna reiði og biturð í þjóðfélaginu?
Geir segir fyrstu pólitísku réttarhöldin á Íslandi hefjast á morgun.
Ég krefst afsagnar allra þeirra þingmanna sem kusu með þessari vitleysu.
Ég vil ekki að þjóðin greiði hundruð milljóna fyrir þessi pólitísku réttarhöld sem formaður lögmannafélagsins telur ekki framkvæmanlega í réttarríki og því verði málinu vísað frá en ég bæti hér því við að gerist það ekki tel ég ekki að þjóðin þurfi ofan á allar aðrar afleiðingar að borga brúsann. Því verða umræddir þingmenn að víkja og greiða sjálfir reikninginn fyrir þessa vitleysu. Ég veit hins vegar að ófrjálslyndir jafnaðarmenn, þ.e. Vg-liðar eru spenntir fyrir pólitískum réttarhöldum eins og þjóðskáldið okkar og sósíalistinn var fyrir tæpum áttatíu árum á ferðarlagi sínu í austuvegi. Þjóðin deilir hins vegar ekki spennunni með VG.
|
„Skýrslan var aðalheimildin“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2011 | 13:16
Hverjir eru kostir og gallar núverandi kvótakerfis?
|
Samfylkingin ræðir umbætur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2011 | 20:45
Ómarktæk og hlutdræg umfjöllun um hvítabirni?
Ég er ekki að skírskota neitt sérstaklega til þessarar fréttar en fréttir um ísbirni virðast dæmigerðar fyrir æsifréttamennsku og kannski það að fjölmiðlar séu meira fyrir að staðfesta fordóma samfélagsins en vinna gegn þeim.
Hvað þessa frétt varðar kemur ekki fram hver stofnstærð hvítabjarna er og hvernig hún er dreifð en hafa verður í huga að Ísland er algjört jaðarsvæði hvítabjarna og það sama gildir um stór svæði norðurhafa og á það líklega líka við um Jan Mayen og Bjarnarey og þá er það ekki vegna þess að þessar eyjar séu svo sunnarlega heldur vegna þess hversu langt þær eru frá Grænlandi og Svalbarða og það er ekkert nýtt hvað það varðar heldur hefur svo verið síðustu sjö þúsund árin eða svo. Kjörlendi hvítabjarna eru svæði á borð við Svalbarða, Grænland, Norður Kanada og Norður Alaska og hafa verður í huga að úrbreiðsla hvítabjarna nær yfir mjög stórt svæði og víða eru þeir dreifðir á samsvarandi svæði á mjög löngu belti frá norðri til suðurs eins og Suður-, Mið- og Norður-Grænland og stórt belti frá norðri til suðurs í Kanada og Alaska.
Það er hins vegar rétt að hvítabirnir hafa sérhæfst í að veiða sér seli sér til matar og því eru þeir einkum við ísröndina á þeim svæðum sem þeir dveljast og önnur deilitegund háhyrninga sækir einnig í sel eins og fjölmörg önnur sjávarspendýr ásamt fiskum en hin deilitegund háhyrninga nærist svo til eingöngu á fiski. Þess vegna keppa háhyrningar við hvítabirni um fæðu sem hefur orðið harðsóttari fyrir hvítabirni en áður vegna hlýnunar jarðar og hefur verið réttilega rakið í fjölmiðlum.
Samt sem áður kemur sjaldnast fram í fréttum hvort ísbirnir séu í útrýmingarhættu því dýr geta oft lifað af þótt í harðbakkann slær. Það er heldur ekkert nýtt en á hámiðöldum milli 1100 og 1300 hefur ekki verið nein gósentíð hjá hvítabjörnum frekar en núna þar sem hlýindi einkenndu þann tíma. Landnámsöldin hefur tæpast verið neitt hlý heldur og hvað sem leið stærð jökla á þeim tíma var stórt skarð lands inn í norðanverðan Vatnajökul sem hefur ekki enn opnast og dró jökullinn jafnvel nafn sitt á þeim tíma af því.
Í annarri frétt í dag á RÚV var tekið viðtal við mann um hvítabirni og var gefið í skyn í fréttinni að hvítabirnir gætu synt fram og til baka á milli íslands og Grænlands og þeir birnir sem hingað kæmu væru mögulega ekki hungraðir og á síðasta snúning. Gefið var í skyn að ísbirnir gætu lifað á þara og öðru en kjötmeti en hér verður að hafa í huga að væri þetta rétt er næsta víst að ísbjarnakomur væru miklu algengari og bæði væri algengt að ferðalangar á hverju ári yrðu varir víð a.m.k. einn ísbjörn og við landnám hefði verið hér stofn ísbjarna því þá voru ekki menn til að drepa þá og á fyrstu árum landnámsaldar var hér ekki nógu margt fólk til að elta uppi alla ísbirni, a.m.k. ekki á öllum Vestfjörðum sem hafa alltaf verið tor- og seinfærir. Það væru þá til frásagnir af því að hér hafi verið stofn ísbjarna en svo er ekki.
Það er ekki rétt að ísbirnir geti synt á milli Íslands og Grænlands og séu ekki á síðasta snúningi þegar þeir koma hingað. Ísbirnir eru landdýr og sem slíkir eru þeir vissulega miklir sundgarpar en þeir eru ekki syndir sem selir og hvað þá hvalir en eins og allir vita eru selir ekki liprir á landi öfugt við hvítabirni. Ísbirnir sem koma hingað koma hafa verið á hafís sem hefur kannski bráðnað undan þeim á hafi úti og þeir því þurft að synda hingað til lands og auðvitað er mjög algengt að ísbirnir drukkni þegar þeir hafa þurft að synda of lengi við slíkar aðstæður því annars væru komur þeirra hingað miklu algengari og þeir kæmust þá kannski líka til Noregs og Færeyja.
Þari í fjörum er líklega næringarríkur, m.a af próteini og söl líka en þar sem nóg er af þara í íslenskum fjörum og líklega líka við Grænland og Norður-Kanada virðist ekki vera raunin að ísbirnir geti lifað á honum því þá myndu þeir líklega bæði lifa af í heimkynnum sínum og hérlendis líka.
Í stærra samhengi má spyrja hvenær ísbirnir þróuðust af brúnbjörnum sem þeir eru náskyldir þótt liturinn sé annar og stærð þeirra sé meiri því fyrir um 400 000 árum var ákaflega hlýtt á norðurhveli Jarðar og hvar voru ísbirnir þá ef þeir voru á annað borð komnir fram?
Eins má nefna að þróun hvala því háhyrningar eru kannski einu hvalirnir sem keppa við ísbirni um fæðu og ég veit ekki hversu langt sé síðan þeir fóru að veiða annað en fisk því háhyrningar virðast vera ein dýrategund með sömu útlitseinkenni og jafnvel litninga líka en menn virðast merkja tvær deilitegundir þeirra og virðist önnur lifa á fiski en hin á fiski sem selum og öðrum hvölum og kannski fuglum og smokkfiskum líka.
Þróun dýra getur verið hröð og kannski á það við um háhyrninga og kannski nema örfá þúsund ár síðan þeir fóru að etja kappi við ísbirni um fæðu og auðvitað bætir hlýnun jarðar þar ekki úr skák og síðan er spurning hvort háhyrningar geti hreinlega veitt sér ísbirni sér til matar því þótt ísbjörninn sé stærsta rándýr jarðar eru háhyrningar stærstir minni tannhvala og mun stærri en ísbirnir sem eru ekki í essinu sínu í vatni og það þótt á grynningum sé.
|
Háhyrningur konungur dýranna? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.6.2011 kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2011 | 10:30
Samt var 1987 fremur veðursælt ár
|
Ekki snjóþyngra síðan 1987 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Desember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 279800
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




malacai
aloevera
kaffi
gattin
ea
hehau
hildurhelgas
himmalingur
leifur
manisvans
siggisig
sveinneh
tara
vefritid
iceberg




