Hermundur talnaspekingur og miðill var búinn að spá þessu!

Hermundur ræddi áramótaspá sína við Arnþrúði útvarpsstýru í kringum áramótin og kom inn á það að útlend yfirvöld yrðu fyrr til að klófesta íslensku útrásarvíkinganna.

Er við öðru að búast þar sem íslensk lögregluyfirvöld eltast bara við einhver seyði gamla spillingarsamfélagsins á borð við Baldur fyrrverandi ráðuneytisstjóra og nafnleysingja sem voru ekki einu sinni millistjórnendur í gömlu bönkunum, á meðan hákarlarnir og hvalirnir sitja enn að sínu óháð því hvað þeir skulda eða gerðu af sér?

Svo er það spurning hvaða efnahagslegu afleiðingar seyðavað sérstaks saksóknara hefur? Verður það til þess að blinda hans á stórfiskana verði til þess að útlend yfirvöld féfletti okkur, íslensku þjóðina, með því að klófesta þá sem í senn fóru með allt peningavaldið og kölluðu yfir okkur þessar hörmungar?

Er ekki nóg komið?

Er málið kannski það að alls kyns mafíur stjórna enn íslensku samfélagi og sjá til þess að fyrrverandi millar sem skulda óheyrilegar upphæðir og er með allt niðrum sig geti murkað miljarð út úr þjóðarbankanum okkar Íslendinga, Landsbankanum til að kveikja í 365 brennsluofninum. Samþykkir AGS virkilega að 1000 milljónir í ofan á allt annað fari í hlutafjáraukningu í þeirri forarhít sem allt gleypir en skilar engu öðru en tapi og hefur aldrei gert annað. Landsbankinn: Ríkisbanki án ríkisafskipta! Gott mál eða hvað? Ó nei!

Það segir hins vegar mikið um þá spillingu sem viðgengst enn hérlendis að þetta geti gengið. Sama má segja um ofsóknir lögregluyfirvalda á smælingjum sem gerðir eru að blórabögglum hrunsins á meðan stórfiskarnir sleppa en þjóðin bíður tjón af.

Þess vegna eru útlendingarnir á undan okkur að rétta yfir okkar raunverulegu þjófum. 

 

 

 


mbl.is Tchenguiz-bræður undirbúa mál gegn Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband