Halelújafólkið og frjálshyggjumenn koma helst til greina

Kannski veit Heimdallur eða Hannes Hólmsteinn um einhver ódönnuð ungmenni úr röðum frjálshyggjumanna en halelújafólkið er ekki síður líklegt þar sem afstaða Gunnars í Krossinum til Evu er lýsandi fyrir þá hópa.

Einnig er mögulegt að fólk sem tilheyrir báðum þessum hópum hafi verið að verki. 

Það er t.d. til Kirkja frjálshyggjumanna, a.m.k. var sá söfnuður til. Ég er samt ekki að fullyrða neitt. Það koma svo margir til greina. 

Hitt er það að fyrir frjálshyggjumönnum er allur þessi niðurskurður mikið gleðiefni svo lengi sem skattar verða ekki hækkaðir að ráði.

Kannski voru þessir menn útsendarar frjálshyggju- og firnahægrimannsins Ara Edwald og Jóns Ásgeirs óreiðumanns? Hver veit?

Geta anarkistarnir og UVG ekki bara sent útsendara úr sínum röðum í alla halelújasöfnuðina, Heimdall, KFUM, Kaþólsku kirkjuna, valda þjóðkirkjusöfnuði og jafnvel fleiri hópa sem liggja undir meiri grun en aðrir?

Það verður að finna þá sem gerðu þetta og því miður hefur lögreglan ekki burði til að leita að jafn lítilli nál í jafn stórum heystakki.

Mér finnst þetta alveg skelfileg tilraun til að þagga niður í lýðræðishreyfingu sem ber að virða hvort sem menn eru sammála henni eða ekki.

Mér var hreint ekki skemmt. Það var ekki bara verið að reyna að þagga niður í Evu og fólkinu hennar heldur öllum almenningi.

Það má ekki gerast. Ég er gráti nær og bráðum tekur reiðin við.

Ég vil auk þess að þessi fjölmenni hópur skipti með sér verkum og setji sólarhringsvakt við húsið og hafi a.m.k tvo til þrjá á í einu á við húsið svo bæði sé hægt að verja húsið og góma þá sem gerðu þetta. Það væri alveg magnað að fletta ofan af þeim og þeir myndu varla að þora að hafa sig framar í frammi.

Við lýðræðissinnar látum hvorki kúga né þagga niður í okkur? 

Þá er bara spurning hverjir munu vakta húsið í kvöld og nótt?

 

 

 

 


mbl.is Ráðist gegn Nornabúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Ég mundi segja að þetta hafi verið Dabbi og Geir... búnir að fá nóg af þessum mótmælum í henni Evu.. og látið verkin tala.

ThoR-E, 2.1.2009 kl. 15:40

2 identicon

Ég held þú hafir hitt naglann á hausinn í þetta skiptið. Er amk. á sömu skoðun og þú - engin spurning.

Skorrdal (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 15:43

3 identicon

Ja þvílíkur viðsnúningur, saklaus lögreglumaður brotin og starfsmaður kíldur er í lagi en svo gerist þetta sem er jafn fáránlegt þá skiljiði ekkert hvað er að ske?

hgiði ykkur eins og menn þá byrjar ekkert stríð milli fylkinga, ég var alla vega nógu reiður pakkinu á gamlársdag til að rasskella einhverja krakka þarna og ef þetta heldur áfram á þessum nótum fer maður að mæta og verja eigur og limi.

Óskar (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 17:45

4 Smámynd: Árni B. Steinarsson Norðfjörð

Ég var ekki að segja að grjótkastið hafi verið eitthvað skárra. Ég hef einmitt gagnrýnt það harðlega hérna á moggablogginu.

Árni B. Steinarsson Norðfjörð, 2.1.2009 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband