Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Nornabúðin á Vesturgötu selur svona dúkkur sem stungið er í

Þar kallast dúkkurnar litlu kreppukarlarnir og á maður að ímynda sér að maður sé að stinga eða ... íslenskan stjórnmálamann.
mbl.is Bannað að stinga Vúdú-Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn; með því áframhaldi yrði allur heimurinn blindur

Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn; með því áframhaldi yrði allur heimurinn blindur.

Þetta sagði Mahatma Gandhi.

Skv. Mikaelfræðunum voru bæði Mahatma Gandhi og Jóhannes skírari yfirskilvitlegar sálir. Einkennum yfirskilvitlegu sálarinnar er lýst mjög vandlega í bókinni Transforming Your Dragons. Þau einkenni koma fullkomlega saman við þá mynd sem dregin er upp af Gandhi í samnefndri kvikmynd með Ben Kingsley. 

 

Sharía réttarfarið er byggt í fyrsta lagi á Kóraninum; i öðru lagi á Haddith ritununum sem segja frá því sem Múhameð á að hafa sagt um allt milli himins og jarðar t.d. um kvenfólk og stríðsrekstur. Menn spyrja sig að því hvernig Múhameð hefði dæmt við svipaðar aðstæður. Síðan er um að ræða önnur rit ef þeim er að skipta og síðan ræður samdóma álit dómara.

 


mbl.is Dæmdur til að fá sýru í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldgos í Bláfjöllum - Ekki byggja í Hafnarfirði eða Árbæ. Byggja frekar í Mosfellsbæ.

Á einni útvarpsstöðinni voru raktar nokkrar frásagnir sjáenda sem virtust allir sjá fyrir sér að Hafnarfjörður fari meira og minna undir Hraun á næstu árum og stór svæði Reykjavíkur muni eyðast vegna mikils hrauns sem renna mun meðfram Elliðárnum.

Aðrar sýnir og berdreymi þessa fólks voru raktar eins og ein kona sem dreymdi fyrir Vestmannaeyjagosinu þrjár nætur í röð áður en það gaus og þegar hún vaknaði svo upp á gosdegi var hún ánægð því hún vissi að engan hafði sakað.

Hafa ber í huga að það er langt um liðið síðan þessir þrír eða fleiri sjáendur sáu þetta fyrir og þeir áttu það sammerkt að spá því að eftir Vestmannaeyjagosið myndi koma gos í Kröflu og Heklu og síðan Suðurlandsskjálftar. Einn maðurinn sá árið 2020 fyrir sér í sýn sinni og þá hafði allt Reykjanesið orðið illa úti og frásögn hans kom saman við lýsingar / spár hinna.

Hvort það hafi verið hann sem sagði að auk Hafnarfjarðar myndi m.a. Grindavík og stór svæði Reykjavíkur vera farin undir hraun.

Einnig nefndu sjáendurnir að land myndi sökkva í sæ og Seltjarnarnes og önnur láglengd svæði Reykjavíkur myndu þannig sökkva í sæ en á því var að skilja að landsumbrot gættu einnig hlut að máli.

Það er þess vegna ekkert vit í að byggja í Vatnsmýrinni.

Jarðrask var nefnt í því sambandi en menn verða að hafa í huga að vegna hnattrænar hlýnunar þá verða mikil flóð í náinni framtíð víða um heim og forsmekkurinn af því hefur reyndar komið fram.

Síðan eru verulegar líkur á því að ein eyjanna í Kanaríeyjaklasanum hrynji og því mun fylgja flóðbylgja sem ganga mun 15 til 20 kílómetra yfir sléttlendi á austurströnd Bandaríkjanna og jafnvel víðar. Það gæti gerst á morgun eða eftir allt að 10 þúsund ár eða ...

Það var sammerkt með öllum sjáendunum að Mosfellssveitin og Mosfellsdalurinn myndi sleppa og þangað myndi fólk flýja í stórum stíl.

Þess vegna er einungis vit í að byggja í Mosfellsbæ
mbl.is Staðnaður byggingariðnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ung- eða smábarnasál með drottnun sem markmið og græðgi sem aðalhindrun.

Líklega er skrímslið skv. Mikaelfræðunum, ung- eða smábarnasál með drottnun sem markmið, ástríðu sem hátt, raunsæi sem viðhorf, græðgi sem aðalhindrun og virkar út frá hreyfistöðinni.

Hitler var t.d. 6. stigs smábarnasál og prestur í kasti stríðsmanns með þessar eða nokkurn veginn þessar hulur.

Ef t.d. er um að ræða unga sál/barnssál sem er stríðsmaður með þessar hulur þá gæti viðkomandi verið nauðgari en ef við hugsum okkur yngri sál, þ.e. smábarnasál sem er þjónn, með undirgefni sem markmið, rósemi sem viðhorf, heftingu sem hátt og  virkar út frá tilfinningastöðinni þá gæti viðkomandi sem dæmi verið munkur eða nunna í klaustri.

 

 


mbl.is Nauðgaði dætrum sínum um árabil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir var kurteis og eðlilegur - Fréttamenn dónalegir

Ég hef horft á vieóið. Viðbrögð og framkoma Geirs var fullkomlega eðlileg. Fréttamenn voru hins vegar dónalegir, ásakandi og ágengir.

Ég tek fram að ég er hvorki sjálfstæðismaður né þekki Geir persónulega. 

Menn verða hins vegar að fara rétt með nema menn séu síkópatar sem eru ekki nett nema ásakanir gagnvart öðrum og kenna öðrum um allt.

Mönnum gengur annað til þegar menn benda á Geir sem menn vilja núna skíta út vegna annarra mála. Það segir allt sem segja þarf um viðbrögðin í bloggheimunum. 


mbl.is Gengur burt úr viðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekki manninn! Fínasti náungi. Á ekki að vera í fangelsi!

Svona góður gæi eins og hann Haukur hefur sterka réttlætiskennd og myndi aldrei ganga í skrokk á öðrum, smygla eiturlyfjum eða leita á börn svo fátt eitt sé nefnt af því sem alvöru glæpamenn gera.

Hann fór t.d. alla leið til Reykjarnesbæjar í haust að mótmæla lögregluofbeldinu á útlendingunum.

Síðan fær hann sekt út af einhverjum fiflalátum vð Kárhnjúka en neitar að borga sektina vegna fátæktar sinnar og fær þá 18 daga dóm.

Tveimur árum síðan er honum samt stungið inn en afplánar bara í fjóra daga út af því að svona ljúfmenni er auðvitað hent út úr fangelsinu ef það þarf að stinga inn alvöru glæpamönnum.

Síðan fer hann í mestu makindum í vísindaferð til Samfylkingarinnar sem bauð  og  tók á móti 20 manna hópi í Alþingishúsinu: Hann er þá handtekinn og stungið inn og er núna innilokaður og verður líklega í fangelsi næstu 8 mánuðina.

Þetta er bara orðið eins og í Bandaríkjunum þar sem fólk fer í fangelsi fyrir hvað sem er.


Koffein er algjört eitur - Læknamafían stendur að baki þessu

Læknir nokkur þ.e. fulllærður íslenskur læknir með læknaleyfi og allt tjáði mér að koffein væri alveg rosalega óholt efni.

Eitt sinn þegar ég fór til hans spurði ég hann að því hvort það væri í lagi að fara í sólarbekki?

Hann svaraði þá að það væri allt í lagi að gera það í hófi á veturna en  sólböð hefðu ekkert með húðkrabbamein að gera heldur það að fólk drykki tíu sinnum meira af kóki en áður og þar fram eftir götunum.

Ég veit annars ekki hvort ég megi nefna þetta opinberlega en fólk reifar ýmislegt á Moggablogginu.

Auðvitað tek ég þessum orðum með miklu fyrirvara og vil að aðrir geri það líka.

Ég tel hins vegar mikilvægt að fólk þekki til koffeins.

Ef einhverjir eru ósáttir við þessi ummæli þá mun ég birta þær athugasemdir.

Rannsóknir hafa sýnt fram á veruleg tengsl koffeins og fósturskemmda.

Svo má nefna háþrýsting og afleidda sjúkdóma - Kannski má nefna heilablóðfall og hjartaáfall í því sambandi.

--------------------------------------------------------------------------------

Breska læknaritið Lancet hefur sagt að það sé sterkt samhengi á milli kaffidrykkju og blöðru- og þvagrásarkrabba.

Heimild: Bókin: Ný og betri bætiefnabiblía 

--------------------------------------------------------------------------------------------------

Þungaðar konur mega hvorki drekka sem neinu nemur af kóki né neyta fitubrennslutafla.

Koffeinneysla hefur aukist grríðarlega vegna kóladrykkja en 2 lítar af kóki samsvara um 20 kaffibollum af koffeini.

Dagskammtur af fitubrennslutöflum samsvara 4 lítrum af kóki eða pepsí.

Ég tek fram að ég mun ekki gefa upp hvaða íslenska lækni ég talaði við jafnvel þótt sjálfur landlæknir hringi í mig.

Læknamafían bannar bestu náttúrulyf en spornar ekki við hámarksmagni koffeins í matvælum.

Það er bjálæði!

 


mbl.is Hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum fellt niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband