Hvað með laga- og regludýrkun, halelúja- og gamaldags fólk og herskyldu?

Það er herskylda í Noregi a.m.k. fyrir drengi. Ég var búinn að blogga um laga- og regludýrkunina í Svíum sem á líklega við Norðmenn líka. P.s. ef menn lesa pistilinn minn þá er það samt svo að norska lögreglan mun vera miklu meira úti á götunum að bögga ökumenn en í Svíþjóð, a.m.k. gerðu Svíar þrátt fyrir eigin siði og skipulag heimildamynd um norsku lögregluna í umferðareftirliti sínu. P.s. Myndi Gunnar í Krossinum skera sig út úr í Noregi? Til að rökstyðja það vil ég benda á þessa sjálfstæðishreyfingu vestlendinga í Noregi en hún snýst um olíuna, málið og ekki síst það að óvíða í Vesturevrópu er um að ræða kristnara fólk en einmitt þar. Af því ég minnist á Færeyinga í pistlinum vil ég spyrja hvers vegna samkynhneigðir eiga svona erfitt uppdráttar í Færeyjum og hvers vegna tóku þeir svona hart á Íslendingnum sem flæktist inn í þetta skútumál í fyrra? Við þurfum bara að afnema verðtrygginguna, þrefalda barnabæturnar, stytta vinnutímann og allt það eins og Norðmenn gera vel. Við eigum hins vegar ekki að taka upp herskyldu, búa til lögregluríki og senda Gunnar í Krossinum á þing. Það höfum við a.m.k. fram yfir Norðmenn. Hér er annars færslan sem ég bloggaði um málið: http://taoistinn.blog.is/blog/taoistinn/?offset=50


mbl.is Íslendingar stefna til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugleikastýring? Nagladekk?

Það á ekki að kaupa sér nýjan bíl nema að það sé stöðugleikastýring í honum. Það er öryggisbúnaður sem er nánast jafn mikilvægur og bílbelti. Stöðugleikastýring kemur í veg fyrir svona lagað.

 

 


mbl.is Bílvelta á Kringlumýrarbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á eftir suðurlandsskjálftum kemur gos í Bláfjöllum - Hafnarfjörður, Garðabær , Kópavogur, Seljahverfið og Árbærinn fara undir hraun.

Þetta hafa margir bestu sjáendur og berdreymendur landsins séð fyrir. Þetta mun gerast fyrir 2020. Það fór hálftími á Útvarpi sögu í að rekja sameiginlega drauma og sýnir nokkrurra einstaklinga. Fólkið sá þetta fyrir sér fyrir um 20 árum eða ... og það rakti þau eldgos og skjálfta sem þegar hafa komið fram.
mbl.is Valda skjálftar eldgosum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að versla í N1 - Líka hægt að fá 10% afsláttarkort

Reyndar er enn ódýrast að kaupa rúðuvökvann í Europris þótt hann hafi hækkað um helming og 4L kosti núna 395 kr.
mbl.is N1 lækkar eldsneytisverð og á yfir 7 þúsund vörutegundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innritunargjöld HÍ 200 til 400 000? Hvaða krabbameins- og MS sjúklingar fá nauðsynleg lyf?

Ég spyr hvort innritunargjöld HÍ hækki úr 50 í 200, 300 eða 400 þúsund fyrir árið? Það er alveg ljóst að ef skera á niður um 10 % í menntakerfinu þá láta menn ekki háskólastigið gagna fyrir þar sem það telst ekki til grunnmenntunar. Miðað við þá erfiðleika sem verið hafa í rekstri þeirrar stofnunar verður að gera ráð fyrir að skóla- / innritunargjöldin hækki fjórfalt eða meira. Í tilviki krabbameinssjúkra gæti það gerst að menn vilji ekki gera meira fyrir sextugan karl núna en menn vildu gera fyrir 75 ára karl fyrir ári og eins má gera ráð fyrir að margir MS sjúklingar fái ekki nauðsynleg lyf. Menn verða að hafa í huga að þessi sem önnur lyf kosta þvílík ósköp að það má gera ráð fyrir svona breytingum nú sem stendur. Á góðæristímum á meðan krónan er sterk er hægt að eyða allri þjóðarframleiðslunni og meira til í krabbameinslyf. Þetta komment byggi ég að hluta til á orðum hagfræðikennara míns úr menntó sem hafði unnið sem slíkur í heilbrigðisráðuneytinu. Lögreglan á varla fyrir eldsneyti á bílana sína né get haft nægan mannsskap í vinnu og bílarnir eru keyrði 500 000 km. Hjá Landhelgisgæslunni eru varðskipin og þyrlan varla hreyfð nema eitthvað gerist. Svona má halda lengi áfram. Öfugt við það sem margir halda þá hefur verið rosalegur agi í ríkisútgjöldum árum saman og núna hafa menn ekkert svigrúm til að hagræða og skera niður án þess að því muni fylgja skelfilegar hörmungar. 10 % flatur niðurskurður ríkisútgjalda er ekkert smá mál.


mbl.is Hallinn yfir 150 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varast læknamafíuna - Taka heilsuna í eigin hendur

Í seinni heimstyrjöldinni og fyrir þann tíma þekktist krabbamein nánast eingöngu sem sjúkdómur gamals fólks. Reyndar var greiningartæknin ófullkomin á þeim tíma og krabbameini því oft ruglað saman við tæringu / berkla. Auðvitað gerðist það samt að fólk á öllum aldri og ekki síst börn fengu krabbamein og dóu úr honum enda var þá sjaldan sem aldrei hægt að lækna þann sjúkdóm.

Aukin tíðni krabbameins stafar hins vegar langt í frá af minnkaðri tíðni annarra sjúkdóma og hækkaðs aldurs. Ýmis krabbamein sem fólk fær jafnan um eða eftir miðjan aldur hafa verið að færa sig neðar og neðar í aldursdreifingu og heldur sú þróun áfram.

Læknamafían veit af ýmsu sem þar veldur en hún heldur því að sjálfsögðu út af fyrir sig og klæðir auk þess þekkingu sína í ýmsan felubúning svo almenningur haldi áfram að lifa biluðum lífstíl og framkalla þannig sjúkdóma. 

Einar Þorsteinn Ásgeirsson arkitekt gerir grein fyrir þessu í bók sinni Lífsspursmál. Ég hef auk þess komið inn á þessi mál í eldri skrifum mínum á Moggablogginu.

Ég vil þó aðeins taka fáein atriði fram núna.

Á innanverðri kápu bókarinnar Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk stendur eitthvað á þá leið að hver sú þjóð sem skiptir út hefðbundnu fiskimataræði fyrir kolvetnisríka fæðu á borð við pitsur í bland við súra drykki á borð við Coca cola getur búist við aukinni offitu og ýmsum krónískum sjúkdómum á borð við krabbamein, MS, beingisnun ... þótt kenning ... hafi ekki verið sönnuð með hefðbundnu rannsóknarsniði liggur fyrir fjöldi dýrarannsókna, fjöldi lífefnafræðirannsókna (ef ég man rétt) og næg reynslusönnun til þess að það er siðferðilega rangt að upplýsa almenning ekki um þann mögulega ávinning sem hann getur haft af því að aðlaga mataræði sitt blóðflokki sínum. Þetta er haft eftir hálærðum manni og þekktum næringarfræðingi.

Þetta veit læknamafían og er svo sem ekkert að flagga þessu. Í lokin vil ég benda fólki á það sem tannlæknirinn minn sagði mér sem er að svarta gosið með súrsæta bragðinu (kók, pepsí) er verra fyrir tennurnar en annað gos. Sykurlaust kók er meira að segja verra en sykrað vegna sítrónusýrunnar. Ef maður velur diet kók fær maður bæði Aspartam og E211 sem ber að forðast. Hitt er það að í sykruðu gosi er meiri sykur en flestir gera sér grein fyrir. 2 lítrar af sykruðu gosi inniheldur það sem nemur fjórum stórum glösum af sykri þ.e. stórum drykkjarglösum af hvítum fínt unnum sykri sem eru mjög einföld og hraðvirki kolvetni og þar af leiðandi óheppileg fyrir líkamann. Mikill sykur veldur síðan bæði hættu á sykursýki 2 (áunninni sykursýki) og krabbameini þar sem hár blóðsykur getur valdið slíku.

E211 eyðileggur DNA-að og er krabbameinsvaldandi sé C - vítamíni blandað við. Koffein veldur auk þess fósturskemmdum og krabbameini í þvagblöðru. P.s. Þetta hef ég hvort tveggja úr íslenskum útbreiddum dagblöðum frá því í fyrravor.

Læknamafían veit þetta allt saman en er ekkert að flagga þessu a.m.k. ekki í auglýsingunum í sjónvarpinu. 

 

 

 


mbl.is Krabbamein útbreiddast 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantrú byrjuð að babbla. Jafnrétti gagnvart Vantrú

Hefur jafnréttisstofa ekkert betra að benda á einhvers konar ójafnrétti sem engan skaðar - a.m.k ekki neina aðra en þeir sem ekki þola neina trúarástundun eins og Vantrú og eða Siðmennt enda má jafnvel gera ráð fyrir að sömu trúlausu vinstrisinnarnir hafi komið sér fyrir í bæði jafnréttisstofu og Vantrú og eða Siðmennt?

Vantrú og eða Siðmennt er líka trúarhreyfing því skv. trúarbragðafræðingum er siðrænn húmanismi flokkaður sem trúarbrögð. Þar sem um er að ræða fundamentalista í flokki trúleysingja. Vantrú og eða Siðmennt er trúflokkur siðrænna húmanista.

Ég er sjálfur ekkert hrifinn af íslensku þjóðkirkjunni þar sem ég er persónulega á móti öllum rétttrúnaði hvað sem hann heitir en það er bara mín skoðun. Menn verða að hafa í huga að  hvað sem öllu líður og skoðun manna kann að líða þá byggir vestræn menning á Biblíunni þótt fleira komi þar til eins og klassísk menning forngrikkja og vísindi og hugmyndastefnur síðustu alda. Það kemur trú svo sem ekkert við því hvort sem menn trúa eða ekki þá verða menn ekki viðræðu- og jafnvel fræðilega hæfir á sviði bókmennta, lista, heimspeki, sagnfræði og  stjórnmálafræði þekki menn ekki til Biblíunnar og þeirra hugmyndaheima sem henni tengjast bæði fyrr og síðar og vítt og breyt. 

Kirkjan gegnir ýmsu hlutverki og það eru ekki allir og þ.m.t. margt fólk t.d. þeir sem tengja sig ekki síður við búddisma, taóisma, spíritisma, guðspeki o.fl., sem kæra sig ekki um borgaralegar athafnir á borð við fermingu og giftingu.

Kristin trú er menningararfurinn og ég tel eðlilegt að ef eða þegar ég eignast börn þá fái þau að einhverju leyti að vaxa upp í íslenskri þjóðkirkju. 

Menn verða síðan að hafa það í huga að börn eru ekki fullorðið fólk og það þarf að móta þau í krafti kristins siðferðis þótt ég sé ekki að  segja að guðleysingjar þurfi upp til hópa að vera minni siðferðisverur en trúaðir. Það er allur gangur á því.

Fólk verður að hafa gaman að lífinu og  ef  börnum er innrættur þessi dauði, vélrænni alheimur án andlegra vídda sem trúleysingjar boða þá verða þau fórnarlömb leiðinda sem fylgja þeim alla ævi og gerir fólki erfitt að takast á við það sem að höndum ber eins og þunglyndi og áfengissýki. 

Franski rithöfundurinn og tilvistarspekingurinn Camus fjallaði í skáldsögum sínum um merkingarleysi lífsins vegna dauðans og einsemd mannsins í guðlausum heimi. 

Málið er þetta með vísindastóðið að þegar ekkert er handan okkar efnisheims þá verður allt svo leiðinlegt. 

Félagsfræðingar  hafa bent á ´leiðindi´ eða ´boring´ sem eitt helsta samfélagsmeinið í dag á Vesturlöndum. Það á að vera svo að þegar menntakerfið og samfélagið innrætir fólki að hvorki guð né yfirnáttúrulegur veruleiki sé til þá leiði það til ótta gagnvart dauðanum og því að fólki finnst það aldrei þurfa að standa skil gjörða sinna en við það missir lífið allan tilgang og útkoman verður boring. Ég tek samt fram að ég trúi ekki á guð í mannsmynd eða...

Vantrú og eða Siðmennt er því að boða og bera út depurð, tilgangsleysi og kvíða. Vantrú og eða Siðmennt er félagsskapur mjög lítils hluta þjóðarinnar þótt sá hópur sé afar herskár og hávær og berjist gegn allri trúarlegri ástundun a.m.k. ef hún tengist ríkinu á einn eða annan hátt. Ég er samt hlynntur því að hinn opinberi vettvangur sé trúlaus og finnst t.d. Guðni Ágústsson oft betur hafa sleppt tengingum í trúna og ritninguna þegar hann hefur verið að ræða um eitthvað allt annað á Alþingi.

Það er hins vegar sjálfsögð jafnréttiskrafa mín að vísindastóðs og vísindahyggjuliðið í Vantrú og eða Siðmennt og femínistarnir í jafnréttisstofu sem væntanlega eru trúlausir, sýni meirihluta þjóðarinnar þá meirihlutakröfu Íslendinga að hætta öllu pexinu um þessi mál.

Það er sjálfsögð jafnréttiskrafa.

 

 

 

 

 


mbl.is Sjálfvirk skráning í trúfélög andstæð jafnréttislögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takmarkaður áhugi þingmanna á þessu ruglfrumvarpi

Ég hef áður skrifað færslur um þessi mál og fer ekki að endurtaka það sem þar kemur fram.

Ég hef hins vegar sjálfur heyrt tóninn í nokkrum þingmönnum þar sem þeir hafa tjáð sig persónulega um að þeir vilji ekki breytingar eða a.m.k...

Miðað við það tel ég að þetta frumvarp sé að hluta til sýndarmennska þar sem Þorgerður er yfirveguð og snjöll stjórnmálakona sem bregst lýðræðislega við þegar mál eru borin undir hana. Vissulega má það vera að hún styðji þetta mál heils hugar en engu að síður grunar mig að þetta frumvarp sé að einhverju leyti bara til að friða óánægjuraddir í samfélaginu eins og í Skjá einum og Skaftahlíðinni og síðan meini menn ekkert með þessu og munu ekki samþiggja þetta. Auðvitað ekki.

 


mbl.is Frumvarp: miklar takmarkanir á auglýsingar RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskupakkarnir virka ekki fyrir 64 bita stýrikerfin.

Ég er með 64 bita Windows Vista. Ég hringdi í Microsoft á Íslandi og spurði þá að því hvort ég gæti sett upp íslenska viðmótið á stýrikerfinu og Office pakkanum en þeir tjáðu mér að hvorugt mynd i virka með 64 bita Windows Vista.

64 bita Windows Vista mun koma núna inn á markaðinn af fullum þunga. Rúmt ár er síðan Apple sendi frá sér 64 bita stýrikerfi. Nánast öll jaðartæki virka núna með 64 bita útgáfunni þótt oft þurfi að fara á heimasíðu framleiðandans til að ná í viðkomandi rekil.

64 bita útgáfan býður upp á mun meiri hraða, líka með 32 bita forritum. 32 bita stýrikerfi og þ.m.t. þær útgáfur Vista sem flestir nota leyfa einungis 4 GB minni þannig að 32 bita stýrikerfin verða brátt liðin tíð í nýjum tölvum - jafnvel innan eins til tveggja ára.

 


mbl.is Innan við fimmtungur velur íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á ekki að borða svínakjöt - Svínakjöt er óholt fyrir alla blóðflokka

Óhollusta svínakjöts felst ekki einungis í þessum þrávirku eiturefnum sem finna má í írskum svínum.

Gyðinga- og múslimatrúin bannar svínaát. Skv. blóðflokkamataræðinu eru slæm lektín í svínakjöti sem gera það óholt fyrir alla menn þ.e. alla blóðflokka mannsins. 

Helsti höfundur blóðflokkamataræðisins telur að gyðingar og fleiri þjóðflokkar hafi áttað sig á því að svínakjöt væri óholt og þaðan væri bannið komið. 

Það eru því ekki einungis tillitsleysi við múslima og gyðinga að bera svínakjöt á borð í mötuneytum landsins heldur eiga allir að sneyða hjá því.

Auk þess finnst mér nautakjöt og lambakjöt miklu betra á bragðið. Það er líka hollt kjöt fyrir a.m.k.

O -blóðflokkinn sem er algengasti blóðflokkurinn og alveg sérstaklega algengur á Íslandi.

 

 


mbl.is Eitur í írsku svínakjöti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband